Tilgangur félagsins
- Að efla samstarf heimspekikennara í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum, m.a. með því að vera vettvangur fyrir skoðanaskipti um heimspekikennslu.
- Að vinna að eflingu heimspekikennslu hérlendis með því að vera ráðgefandi aðili gagnvart fræðslu- og skólayfirvöldum um tilhögun heimspekikennslu í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum.
- Að hafa forgöngu um endurmenntunarnámskeið og aðra fræðslustarfsemi fyrir heimspekikennara eftir því sem við
Stjórn félagsins 2009-2010
Ármann Halldórsson, formaður (kennari við Verzlunarskóla Íslands)
Ingimar Waage, ritari (kennari við Garðaskóla)
Björn Rúnar Egilsson, gjaldkeri (leiðbeinandi við leik- og grunnskóla Hjallastefnunnar í Reykjavík)
Aðild að félaginu
Félagar geta orðið starfandi heimspekikennarar og leiðbeinendur í framhaldsskólum, grunnskólum og leikskólum svo og þeir sem hafa kennsluréttindi í heimspeki. Félagsstjórn samþykkir nýja félaga en aðalfundur sker úr vafaatriðum.
Til að gerast félagi skaltu senda tölvupóst til formanns (armann(hjá)verslo.is) og/eða gjaldkera (ingimar(hjá)gardaskoli.is) félagsins. Nauðsynlegt er að skrifa kennitölu í póstinum. Gott er að taka fram hvers vegna þú hefur áhuga á aðild og hvort og hvar þú ert að kenna heimspeki.
Sögubrot
Félag heimspekikennara var stofnað 1996 af starfandi heimspekikennurum á ýmsum skólastigum. Fyrstu starfsár sín tók félagið þátt í endurskoðun Aðalnámskráa fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Starfsemi félagsins lá síðan niðri um árabil en sumarið 2009 vaknaði það aftur til lífsins.
Lög félagsins
Lög félags heimspekikennara voru samþykkt á stofnfundi 7. desember 1996. Þau má nálgast hér![]()
Heimspekivefur Garðaskóla