BS 27.02.08
Meiri heimspeki næsta vetur
Þessa dagana eru nemendur í Garðaskóla að sækja um valgreinar fyrir næsta skólaár. Nú eru tveir heimspekihópar í boði:
- Heimspeki (HEM3003) er heimspekivalið sem hefur verið kennt í Garðaskóla undanfarin ár. Þetta er samval fyrir 9. og 10. bekkinga þar sem grunnsvið heimspekinnar eru kynnt og nemendur þjálfaðir í gagnrýninni samræðu um heimspekilegar spurningar sem þeir velja að miklu leyti sjálfir.
- Heimspeki 103 er framhaldsskólaáfangi sem verður í boði í fyrsta sinn í Garðaskóla. Áfanginn er aðeins í boði fyrir 10. bekkinga og hér er farið yfir mun viðameira námsefni. Grunnhugtök, kenningar og frægustu höfundar heimspekinnar eru kynntir. Mikil áhersla er lögð á samræðu í tímum en nemendur þurfa líka að lesa texta eftir heimspekinga og skrifa heimspekilegar greinargerðir. Nemendur sem ná þessum áfanga fá hann metinn til eininga í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ.
BS 20.02.08
Heimspekinemar endurnærðir eftir vetrarfrí
Í dag hittist heimspekibekkurinn aftur eftir vetrarfrí. Orðunum "Tilgangur lífsins" var varpað upp á töfluna og nemendur ruku af stað! Mjög margar og ólíkar hugmyndir um tilgang lífsins komu fram og munu nemendur rýna í þær og bera þær saman næstu tvær vikurnar. Sýnishorn má sjá í "skoti vikunnar."
BS 14.01.08
Samræða um ástina í Hlaðvarpi Ríkisútvarpsins
Upptöku úr heimspekitíma í Garðaskóla fyrr í janúar má finna í Hlaðvarpi Ríkisútvarpsins sem geymir útvarpsupptökur á netinu. Samræða nemenda er sundurslitin af viðtali við kennarann, en það má alltaf hraðspóla yfir það sem maður nennir ekki að hlusta á.
BS 14.01.08
Heimspekipistill á Málgarði
Nú fer að líða að því að fyrsti pistill heimspekinganna í Garðaskóla birtist á Málgarði, veftímariti grunnskólanemenda í Garðabæ. Þessi fyrsti pistill er samantekt á samræðu hópsins um FEGURÐINA
BS 09.01.08
Útvarpsþátturinn Stjörnukíkir á Rás 1 heimsækir Garðaskóla
Miðvikudaginn 9. janúar heimsótti útvarpskonan Elísabet Indra Ragnarsdóttir Garðaskóla og tók upp samræður nemenda í heimspekivalinu og í myndmenntatíma hjá Ingimar Waage. Elísabet Indra er að undirbúa þáttinn Stjörnukíkir sem er á dagskrá vikulega og föstudaginn 11. janúar verður fjallað um heimspekikennsluna í Garðaskóla í þættinum. Stjörnukíkir fjallar um listnám og barnamenningu og hefur verið á dagskrá Rásar 1 allt síðastliðið haust.
Í lok kennslustundanna voru kennararnir afar ánægðir með framlag nemendanna í Garðaskóla og vonandi heppnast upptökurnar vel þannig að við fáum að heyra sem mest frá samræðu þeirra í útvarpinu á föstudaginn. Í myndmenntinni var 8. EE að hitta Ingimar í fyrsta sinn og pælingar þeirra kviknuðu út frá málverki eftir franska listmálarann Magritte. Heimspekihópurinn fjallaði um ástina og sýnishorn af þeirra samræðu má sjá í skoti vikunnar hér að ofan.
BS 03.12.07
Trúarbrögð til umfjöllunar
Undanfarna daga hefur verið mikil umræða um trú og trúarbragðakennslu í íslensku samfélagi. Þessi umræða hefur teygt anga sína inn í heimspekival Garðaskóla þar sem tekist hefur verið á um spurningar eins og "á að kenna kristinfræði í skólum?" og "eiga trúarbrögð að hafa áhrif á hvernig dýrum er slátrað og hvaða mat fólk borðar?" Skoðanir nemenda er skiptar og umræðan lífleg og innihaldsrík.
BS 22.11.07
Vel heppnuð vinna á WIKI-síðu nemenda
Undanfarnar vikur hafa heimspekinemendur unnið efni á WIKI-síðu heimspekivalsins. Nemendur hafa aðallega verið að vinna á "discussion" svæði þar sem þau setja fram hugmyndir og fá svör frá öðrum í bekknum - þetta er einhvers konar skrifuð samræða. Það er mjög gaman að fylgjast með nemendur skrifast á og þarna skapast ný vídd í samræðu þeirra um heimspekilegar hugmyndir.
Annað verkefni sem unnið er á WIKI-síðunni er að bekkurinn skrifar sameiginlegan texta. Nú eru nemendur t.d. að leggja lokahönd á sameiginleg lokaorð um FEGURÐ en samræðu um hugtakið er nýlokið. Nemendur geta allir nálgast textann inni á WIKI-síðunni, bætt við hann og lagað. Í næstu viku verður afraksturinn síðan sendur á Málgarð, veftímarit grunnskólanemenda í Garðabæ.
BS 18.10.07
Heimspekingur í heimsókn
| Miðvikudaginn 17. október fékk heimspekivalið góðan gest, heimspekinginn Ólaf Pál Jónsson. Nemendur höfðu fyrirfram sent heimspekingnum spurningar og svaraði hann nokkrum þeirra í tímanum. Hann var óneitanlega mjög "heimspekilegur" þar sem hann gekk fram og tilbaka fyrir framan nemendahópinn og gruflaði í því sem hann ætlaði að segja. Umræðan snérist að miklu leyti um það hvað skilgreini góðan heimspeking og hvað það þýði þegar sagt er að heimspekingur lifi í fílabeinsturni. |
Ólafur Páll nefndi í tali sínu nokkra klassíska heimspekinga og benti til dæmis á að besta fyrirmynd hvers heimspekings væri líklega Sókrates sem lifði í Grikklandi um 400 árum fyrir krist burð. Nemendur hlustuðu greinilega mjög vel á Ólaf Pál og lögðu fram mjög góðar spurningar sem dýpkuðu umræðuna. Ekki fékkst fullkomlega endanlegt svar við öllum spurningum, en það er heldur ekki við því að búast í heimspekitíma. En heimsóknin hafði tvímælalaust gildi og hjálpaði nemendum (og kennara) að átta sig á þessari illskilgreinanlegu fræðigrein, heimspekinni.
BS 11.10.07
WIKI-síða heimspekinemanna
Nú eru heimspekinemarnir byrjaðir að vinna heimavinnuna sína inn á WIKI síðu sem sett hefur verið upp fyrir heimspekivalið. Fyrsta verkefni þeirra var að skrifa inn lokaorð eftir samræðuna um nám og þekkingu. Til að byrja með verður vefsíðan lokuð þannig að einungis nemendur og kennari hafa aðgang að henni. Seinna í vetur stendur til að opna hana þannig að fleiri geti fylgst með skrifum heimspekinemanna.
BS 05.10.07
Heimild: Víkurfréttir. (2007). Einstakt tækifæri fyrir börn. 6:36, bls. 14.
Í haust bjóða Námsflokkar Hafnarfjarðar upp á námskeið í heimspeki með börnum. Námskeiðið stendur yfir 9. október - 27. nóvember og kennt er á þriðjudögum kl. 18.00-19.00.
Kennari á námskeiðinu er Hrannar Baldursson M.Ed. sem hefur áralanga reynslu af að kenna börnum heimspeki og rak um árabil heimspekiskóla í Mexíkó. Auk þess hefur Hrannar þjálfað skáklið Salaskóla sem nýverið varð heimsmeistari í skák.
Á námskeiði Hrannars verða teknar fyrir ýmsar heimspekilegar spurningar. "Námskeiðið er tækifæri fyrir börn til þess að ræða um heimspekileg málefni og það getur verið hvað sem er. Það getur verið siðfræði, ást, vinátta, réttlæti, sanngirni og nánast hvað sem er. Börn fá þarna tækifæri til að ræða um hluti sem þau hafa verið að pæla í en ekki haft neinn vettvang til að ræða á. T.d. þegar farið er að ræða um vináttu þá geta einstaklingar haft mismunandi skoðanir á því hvað vinátta er og orðið ósammála um eitthvað sem þeim hefur fundist sjálfsagður hlutur."
BS 04.10.07
Heimsóknir í heimspekivalið
Það er gestkvæmt í heimspekivalinu í Garðaskóla þessa dagana. Miðvikudaginn 3. október heimsótti Íris Reynisdóttir kennari í Hlíðaskóla okkur og fékk að fylgjast með heimspekitíma. Íris byrjaði að kenna heimspekival í Hlíðaskóla síðasta vetur og er að kynna sér hvernig valgreinin er kennd í Garðaskóla og víðar.
Ingimar Waage, myndmenntakennari í Garðaskóla, mun skjóta upp kollinum í heimspekitímum af og til í vetur. Hann er farinn að beita heimspekilegri samræðu í myndmenntakennslunni hér í skólanum og hefur áhuga á að læra af heimspekihópnum.
| Miðvikudaginn 10. október kemur síðan heimspekingur í heimsókn til okkar. Það er Ólafur Páll Jónsson lektor í heimspeki við Kennaraháskóla Íslands sem heimsækir bekkinn. Hann mun sitja fyrir svörum og fá nemendur tækifæri til að spyrja hann spjörunum úr um heimspekina og hvers konar starf það er að vera heimspekingur. |
|
BS 28.08.07
Heimspeki orðin skyldunámsgrein í Réttarholtsskóla
Skólaárið 2007-2008 er heimspeki í fyrsta sinn inni í stundaskrá allra 8. bekkinga í Réttarholtsskóla í Reykjavík. Jóhann Björnsson, heimspekingur og kennari í Réttarholtsskóla, hefur um árabil boðið nemendum 9. og 10. bekkjar heimspeki sem valgrein. Heimspekin hefur gengið mjög vel og nemendur hafa verið ánægðir þannig að stórir hópar hafa valist inn í heimspekina. Og nú er greinin í boði fyrir alla 8. bekkinga sem geta þá myndað sér skoðun á því hvort þeir vilji halda áfram í heimspekivalið í 9. og 10. bekk. Við hlökkum til að sjá hvernig heimspekin heldur áfram að dafna í Réttó!
BS 03.08.07
Heimspekinemar veturinn 2007- 2008: VELKOMNIR!
Skólasetning verður í Garðaskóla miðvikudaginn 22. ágúst og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá daginn eftir. Í vetur verður einn heimspekihópur starfandi og í fyrstu kennslustundinni, föstudaginn 24. ágúst verður nemendum greint frá tilhögun kennslunnar og hvaða námsgögn þeir þurfi að nota. Áætlun haustannar má nálgast hér.
Heimspekinemar vetrarins eru flestir að kynnast heimspekinni í fyrsta sinn á skólaferlinum. Við förum rólega af stað fyrstu vikurnar. Ýmsar hópefliæfingar verða á dagskrá og fyrsta heimspekilega viðfangsefnið er spurningin: Hvað er heimspeki?
Á þessari heimasíðu má fylgjast með starfi heimspekinemanna í vetur og auk þess finna ýmsar upplýsingar um starf fyrri ára og heimspekikennslu almennt.
BS 29.05.07
WIKI síða í þróun
Í vetur byrjuðum við að þróa notkun á wikispaces heimasíðu hér í heimspekivali Garðaskóla. WIKI síða heimspekivalsins hefur smám saman tekið á sig mynd og hafa nemendur verið duglegir við að prófa þar ýmsa hluti og setja inn hugleiðingar sínar. Kosturinn við svona heimasíður er að allir nemendur geta á auðveldan hátt unnið inn á sömu síðuna sem síðan má breyta og bæta eins og hópnum þykir henta. Þar sem við erum stöðugt að þróa hugmyndir í heimspekitímunum þá er upplagt að halda því áfram á WIKI síðunni milli kennslustunda. Á nýuppfærðri WIKI-síðu heimspekivalsins má sjá allt það sem heimspekinemarnir hafa sett inn á síðustu mánuðum og einnig hvernig hafinn er undirbúningur að vinnu nýrra heimspekinema næsta haust.
BS 22.05.07
Skólaárinu að ljúka
Nú fer góðum vetri í Garðaskóla brátt að ljúka. Það hefur verið sérlega ánægjulegt að vinna með heimspekibekkjunum í vetur. Starfið hefur einkennst af gleði og ánægju og nemendur hafa sýnt ágætar framfarir í samræðutækni og gagnrýnu hugarfari. Nú fer ég að draga saman þá reynslu sem safnast hefur upp og mun nýta hana til að skipuleggja enn betra heimspekival veturinn 2007-2008.
Ég óska 10. bekkingunum bjartrar framtíðar og hlakka til að hitta 9. bekkingana aftur næsta haust!
Bestu kveðjur,
Brynhildur
BS 07.05.07
Heimspekinámskeið í Háskóla unga fólksins sumarið 2007
Í eina viku í júnímánuði, dagana 11.-15. júní 2007, verður Háskóla Íslands breytt í Háskóla unga fólksins. 12-16 ára unglingum býðst þá að sækja fjölda stuttra námskeiða um efni sem kennt er í Háskóla Íslands og auk námskeiðanna eru þemadagar um tiltekin viðfangsefni. Í sumar verður sérstakt heimspekinámskeið í boði en auk þess verður heimspekilegt sjónarhorn í boði innan ýmissa námskeiða, t.d. tölvunarfræði.
Skráning fer fram á vefsíðu Háskóla unga fólksins frá 10. maí til 1. júní 2007.
BS 24.04.07
Erindi um WIKI skrif heimspekinemenda
Í júní mun Brynhildur heimspekikennari halda til Ísrael og flytja erindi á alþjóðlegri ráðstefnu um heimspeki með börnum. Í erindinu mun hún segja frá tilraun sem verið hefur í gangi í heimspekivalinu í vetur þar sem nemendur hafa unnið heimavinnu með því að skrifa inn á WIKI-síðuna sína. Þar hafa þeir haldið áfram með umræðu sem hafin var í kennslustundum og getur verið mjög athyglisvert að skoða muninn á því hvað nemendur segja í tímum eða skrifa á WIKI-síðuna. Erindið mun birtast hér á heimasíðunni þegar það er tilbúið í júní og þá getið þið skoðað þetta með eigin augum.
BS 24.04.07
Heimspeki og myndmennt
Ingimar Waage, myndmenntakennari í Garðaskóla nýtir aðferðir heimspekinnar í myndmenntakennslunni til að dýpka hana og auka fjölbreytileikann.
Meðal verkefna sem nemendur fá er að spyrja spurninga út frá listaverkum sem þau skoða og ræða síðan spurningarnar. Með dálítilli þjálfun og reynslu geta nemendur lært heilmikið af slíkri umræðu: um listina, sjálfan sig og skoðanir annarra í bekknum. Í 8. bekk skoðuðu nemendur fyrir nokkrum vikum myndina Reproduction interdite eftir belgíska málarann René Magritte og þá komu fram eftirfarandi spurningar:
|
|
BS 27.03.07
Hver er tilgangur lífsins?
Það er spurning sem bekkur 2. velti fyrir sér fyrr í mars. Ein útkoman var veggspjaldið ,,Allt er þetta hégómi..." sem unnið er undir miklum áhrifum frá Prédíkara Biblíunnar.
BS 23.03.07
Gestir heimsækja heimspekitímana
Föstudaginn 23. mars kom góður gestur og heimsótti báða heimspekibekkina og fékk að fylgjast með tímunum. Það var Jóhanna J. sem er að skrifa lokaritgerð um heimspeki með börnum í B.A. námi sínu við háskólann á Bifröst.
Næsta þriðjudag, 27. mars, kemur síðan Ármann Halldórsson, heimspekikennari úr Verslunarskóla Íslands og fær að fylgjast með vinnu nemenda.
Fram að páskum eru heimspekibekkirnir að fást við spurningar sem tengjast efni myndarinnar Fight Club sem sýnd var á bíókvöldinu fimmtudaginn 22. mars. Meðal spurningar sem nemendur fást við eru:
- Af hverju hittast þau og ákveða að gráta?
- Hver var tilgangurinn með allri eyðileggingunni í myndinni?
- Er það til beturs eða verra að við lifum lífinu sem neytendur?
- Eru allir hræddir við lífið? Eru allir hræddir við dauðann?
BS 20.03.07
Bíókvöld í heimspekivalinu
Fimmtudaginn 22. mars kl. 19.00 hittast allir heimspekinemarnir í Garðaskóla á bíókvöldi í stofu 222 í Garðaskóla. Allur kostnaður er greiddur af launum sem nemendur fengu fyrir útvarpspistla sína í janúar. Nemendur munu horfa á bíómynd sem síðan verður viðfangsefni heimspekitímanna fram að páskum.
BS 02.03.07
Skúli Pálsson heimspekikennari bloggar um kennslu sem list og vísindi
Pæling Skúla kviknaði undir fyrirlestri Jóhanns Björnssonar, MA í heimspeki og heimspekikennara í Réttarholtsskóla, á málstofu um heimspeki í skólum við Háskóla Íslands.
BS 20.02.07
Erindi um heimspekivalið á málstofu við Háskóla Íslands
Föstudaginn 23. febrúar kl. 15.30 mun Brynhildur Sigurðardóttir, heimspekikennari í Garðaskóla, halda erindi um heimspekivalið í Garðaskóla á málstofu um heimspekikennslu sem haldin er af heimspekiskor Háskóla Íslands á vormisseri 2007. Í erindinu mun hún lýsa vinnubrögðum og viðfangsefnum í heimspekivalinu og hugleiða kosti þess og galla að hafa heimspeki sem valfag í grunnskóla.
Allir áhugasamir eru velkomnir að hlusta á erindið og taka þátt í umræðum. Málstofan fer fram í Aðalbyggingu Háskóla Íslands, stofu 313.
BS 13.02.07
Heimspekinemarnir á leið í bíó
Eftir vetrarfríið munu heimspekinemar skella sér í bíó. Enn er verið að skiptast á hugmyndum um hvaða mynd hóparnir ætla að sjá (báðir hóparnir fara saman) en þær sem helst hafa verið nefndar eru ,,Little Miss Sunshine" og ,,In pursuit of happiness." Eftir ferðina munu kennslustundir fara í úrvinnslu á þeim hugmyndum sem kvikmyndin kveikir meðal nemenda.
Bíóferðin verður kostuð með launum sem heimspekinemar fengu fyrir pistla sína í Ríkisútvarpinu í janúar síðastliðnum. Það var samhljóma ákvörðun þeirra sem unnu pistlana að allir í heimspekivalinu skyldu fá að njóta launanna.
BS 23.01.07
Kennarar í Garðaskóla fara á námskeið hjá skoskum sérfræðingi í heimspekikennslu
Í byrjun febrúar fara nokkrir kennarar Garðaskóla á námskeiðið ,,Innleiðing heimspekinnar í skólana" hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Kennari á námskeiðinu er Dr. Catherine McCall sem hefur kennt börnum heimspeki og þjálfað kennara til hins sama í áratugi. Dr. McCall hlaut nýverið viðurkenningu í Skotlandi fyrir námsefni og kennaraþjálfun sem hún hefur haft veg og vanda að. Í héraðinu East Renfrewshire mun heimspeki í anda aðferða Dr. McCall verða skyldunámsefni fyrir alla 8-16 ára nemendur. Það verður spennandi að sjá hvað við í Garðaskóla getum lært af þessu!
BS 07.01.07
Málstofa um heimspeki í skólum
Heimspekiskor Háskóla Íslands í samstarfi við Heimspekistofnun HÍ og Kennaraháskóla Íslands heldur málstofu um heimspeki í skólum á vorönn 2007. Fyrirlesarar verða heimspekingar og kennarar sem hafa ýmiss konar reynslu af heimspekikennslu með fólki á öllum aldri. Umfjöllun verður bæði fræðileg og hagnýt.
Heimspekiskor Háskóla Íslands í samstarfi við Heimspekistofnun HÍ og Kennaraháskóla Íslands heldur málstofu um heimspeki í skólum á vorönn 2007. Fyrirlesarar verða heimspekingar og kennarar sem hafa ýmiss konar reynslu af heimspekikennslu með fólki á öllum aldri. Umfjöllun verður bæði fræðileg og hagnýt.
Þeir sem sitja málstofuna verða heimspekingar, kennarar af öllum skólastigum og nemar í M.Paed. námi heimspekiskorarinnar við HÍ.
Umsjón með málstofunni hafa Dr. Gunnar Harðarson og Dr. Sigríður Þorgeirsdóttir.
Dagskrá málstofunnar:
Stund: Föstudagar kl. 15:30-17:00.
Staður: Aðalbygging Háskóla Íslands, stofa A-313.
I – Heimspekilegt samræðusamfélag
12. janúar Hreinn Pálsson, Hvernig myndast heimspekilegt samræðufélag á meðal nemenda og hver eru helstu einkenni þess?
19. janúar Guðrún Eva Mínervudóttir, Heimspeki og sögur fyrir börn.
26. janúar Geir Sigurðsson, Meðal menninga: Hugleiðingar frá Hawaii og Kína.
2. febrúar Ólafur Páll Jónsson, Lýðræði í skólastofunni
II – Heimspeki í leik- og grunnskóla
9. febrúar Sigurður Björnsson, Heimspeki með börnum og lífsleiknimarkmið í leik- og grunnskóla.
16. febrúar Skúli Pálsson, Heimspekistundir með börnum frá 5 til 12 ára.
23. febrúar Brynhildur Sigurðardóttir, Heimspekival í unglingaskóla
2. mars Jóhann Björnsson, Siðferðilegt sjálfræði – Þróunarverkefni í Réttarholtsskóla
III – Heimspekikennsla í framhaldsskólum
9. mars Guðrún Hólmgeirsdóttir, Markmið, aðferðir og vandi við heimspekikennslu í framhaldsskólum
16. mars Hrannar Baldursson, Heimspekikennsla í framhaldsskólum á Íslandi - reynsla og aðferðafræði
23. mars Róbert Jack, Heimspekitilraunir í framhaldsskólanum
30. mars Ármann Halldórsson, Heimspeki og framsækin kennslufræði: Aðferðir úr heimspekipraktík og efling lýðræðislegs framhaldsskóla
13. apríl Kristín H. Sætran, Tími heimspekinnar í framhaldsskólan
BS 07.01.07
Vorið í heimspekivalinu
Nú hefst starf vorannar af fullri alvöru. Nemendur byrja á því að velta fyrir sér hugsanlegum viðfangsefnum sem við síðan röðum inn á kennsluáætlun. Megináherslan verður áfram á gagnrýna samræðu í kennslustundum, að leita uppi ágreining og spennandi viðfangsefni sem skipta nemendur máli.
BS 07.01.07
Pistlar í Víðsjá
Nú hafa allir pistlarnir frá heimspekinemum Garðaskóla heyrst í þættinum Víðsjá á Rás1. Við óskum öllum sem tóku þátt í að semja og flytja pistlana til hamingju með flotta vinnu! Þáttastjórnendur Víðsjár voru mjög ánægðir með útkomuna og viðbrögð úti í samfélaginu hafa verið jákvæð. Einhver hafði á orði að það kæmi þægilega á óvart að enn væru til hugsandi ungmenni. Það þyrfti kannski að bjóða fólki í heimsókn í Garðaskóla, í heimspekitíma, aðrar kennslustundir eða frímínútur til að það sjái betur að það er erfitt að finna ungt fólk sem er ekki vel hugsandi!
Eftirfarandi pistlar voru fluttir í Víðsjá á Rás 1 vikuna 2.-5. janúar 2007:
- Jakob Sindri Þórsson las pistilinn ,,Er maðurinn að drepa jörðina?" sem hann samdi ásamt Önnu Katrínu Einarsdóttur og Völu Kristínu Eiríksdóttur
- Ragnheiður Björk Halldórsdóttir las pistilinn sinn ,,Fordómar"
- Ásgeir Davíðsson las pistilinn ,,Fegurð og fordómar" sem hann samdi með hjálp frá fleirum í hópi 2
- Þórdís Sesselja Ólafsdóttir flutti pistilinn ,,Þarf skólinn að vera skylda?" sem hún samdi ásamt Guðnýju Rut Hafsteinsdóttur og Erlu Sif Karlsdóttur
Pistlana má heyra á http://dagskra.ruv.is/streaming/ras1/í 2 vikur eftir flutning.
BS 27.12.06
Gleðilegt ár!
Við óskum öllu áhugafólki um heimspeki og gagnrýna hugsun farsældar á komandi ári. Megi hugsun ykkar fara ótroðnar slóðir og hafa víðtæk áhrif.
BS 11.12.06
Víðsjá býður heimspekinemendum til samstarfs á nýju ári!
Útvarpsþátturinn Víðsjá, sem er á dagskrá Rásar 1, FM 93.5, á hverjum virkum degi milli klukkan 17 og 18, hefur boðið heimspekinemendum Garðaskóla að flytja pistla í þættinum í fyrstu viku ársins 2007. Nemendur hafa samið fjóra pistla sem fluttir verða dagana 2.- 5. janúar næstkomandi og verður spennandi að heyra hvað þeir bjóða okkur að hugsa um á nýju ári!
Upptökur fyrir þættina fóru fram fimmtudaginn 28. desember og hér sjáum við flytjendur pistlanna í Stúdíói 4. Rás 1 er þegar byrjuð að auglýsa pistlana og eftir að þeir hafa farið í útsendingu má finna þá á www.ruv.is.
BS 01.12.06
Nýútkomin bók um hversdagsheimspeki
Hjá Háskólaútgáfunni er komin út bókin Hversdagsheimspeki eftir Róbert Jack.
BS 28.11.06
Heimspekinemar fara á fund skólastjóra
Fjórar stúlkur úr hópi 1. héldu á fund Ragnars Gíslasonar, skólastjóra Garðaskóla, þriðjudaginn 28. nóvember síðastliðinn. Tilgangurinn var að gefa skólanum niðurstöður úr verkefninu ,,Bestiskóli" sem hópur 1. vann fyrr í haust. Í verkefninu áttu nemendur að hanna draumaskólann sinn. Unnið var í tveimur litlum hópum og voru niðurstöður hópanna um margt líkar - og margt í lýsingunum var ansi líkt því sem einkennir Garðaskóla í raun! Það er kannski ekki svo mikill munur á draumi og veruleika?
BS 21.11.06
Vinnan í desember
Áður en við ljúkum haustönninni eigum við eftir að fjalla um eitt megin svið heimspekinnar, fagurfræðina, sem fjallar um spurningar á borð við Hvað er fegurð? og Af hverju telst eitthvað fallegt?
Föstudaginn 8. desember á hver nemandi að koma með sýnishorn í tímann, sýnishorn af einhverju sem honum eða henni finnst fallegt. Það má koma með hvað sem er, svo lengi sem það er meðfærilegt. Það getur verið mynd eða annar hlutur, hugmynd, texti, hljóð eða tónlist, myndband eða hvað annað sem nemendum dettur í hug. Eina skilyrðið er að nemandanum verður raunverulega að þykja sýnishornið fallegt og vera tilbúinn að útskýra af hverju.
BS 21.11.06
Verkefni heimspekihópanna í nóvember 2006
Seinni hluta nóvember hafa heimspekihóparnir fjallað um réttindi, með sérstaka áherslu á réttindi barna og unglinga.
Vinnan hófst með opinni umræðu þar sem fengist var við spurningar á borð við:
- hvað eru réttindi?
- hverjir hafa réttindi?
- hvað eru góð dæmi um réttindi?
- hvernig öðast menn réttindi?
Síðan tók við hópvinna þar sem nemendur lásu texta á borð við Barnasáttmála sameinuðu þjóðanna og unnu veggspjald um þær hugmyndir sem hópurinn ræddi í kjölfar lestursins.
Heimspekivalið veturinn 2006-2007
Í vetur eru tveir heimspekihópar í Garðaskóla og í þeim eru nemendur úr 9. og 10. bekk. Hóparnir eru fámennir, 6-10 í hóp, en færri komust að í valgreinina en vildu vegna árekstra við aðrar námsgreinar í stundaskrá nemenda.
Heimspekivefur Garðaskóla

