Til heimspekinema í Garðaskóla.
Í vetur munt þú kynnast heimspekinni sem er ein af elstu fræðigreinum vestrænnar menningar. Heimspekin á sér 2500 ára sögu og hluti þessarar sögu sést í textum eftir menn og konur eins og Platón, Hildegaard von Bingen, John Stuart Mill, Iris Murdoch og Pál Skúlason.
Sókrates (469-399 f.Kr.) var mikill samræðusnillingur |
En textar heimspekinganna sýna aðeins hluta af þeirri samræðu sem heimspekin í raun snýst um. Heimspekin nærist á lifandi samræðu, samtali sem snýst um að finna andstæðar skoðanir og kryfja þær í þeim tilgangi að fá meiri og dýpri skilning á lífinu og tilverunni. Í vetur munum við skapa slíka samræðu í okkar hópi og þú þarft að líta á sjálfa(n) þig sem heimspekinginn. Mikilvægasta verkefnið þitt verður að taka þátt í samræðunni og leggja þitt af mörkum til að hún þróist á jákvæðan hátt. Þetta þýðir að þú verður að hlusta vel á aðra, segja þína skoðun og hugsa um hvernig aðrir geti gert hið sama. Um leið og við skiptumst á skoðunum þá hugsum við líka um hvernig við hugsum og tölum saman.
Í samræðunni okkar notum við texta annarra heimspekinga til að fá hugmyndir og koma eigin hugsunum af stað. En við munum aðallega vinna út frá hugmyndum nemendanna í hópnum, þínum hugmyndum. Margar af þessum hugmyndum hafa ekki sést á blaði áður og því er mikilvægt að við skrifum þær niður jafn óðum og höldum vel utan um þær. Þetta vinnuhefti á að hjálpa þér við þetta utanumhald. Vinnuheftið er bara hálfskrifað. Í því eru æfingar og textar sem við notum í upphafi námsársins en síðan á eftir að bæta inn fleiri ljósritum auk blaðsíðna þar sem þú skrifar þínar spurningar, hugmyndir og athugasemdir eftir því sem vinna okkar þróast áfram. Eftir því sem líður á veturinn munum við síðan bæta inn í vinnuheftið þeim textum sem við viljum skoða, spurningum sem hópurinn setur fram og vinnur úr og alls kyns verkefnum sem munu verða til þegar vinna hópsins þróast áfram.
Helstu markmið í heimspekináminu eru eftirfarandi:
- Að efla sjálfstæða, gagnrýna og skapandi hugsun og umhyggju fyrir hvert öðru og viðfangsefninu
- Að gefa nemendum tækifæri til að tjá skoðanir sínar á skýran og skilmerkilegan hátt
- Að efla heilbrigða dómgreind og umburðarlyndi
- Að gefa innsýn í viðfangsefni og aðferðir heimspekinnar
Helstu atriði sem hafa ber í huga varðandi vinnubrögð í vetur:
- Í kennslustundum er yfirleitt samræða þar sem allur hópurinn tekur þátt. Af og til er þetta brotið upp með verkefnum í minni hópum og heimspekilegum æfingum af ýmsu tagi.
- Nemendur þurfa að skrá hjá sér spurningar og athugasemdir meðan á samræðum stendur. Þessar skráningar skal merkja með titli (viðfangsefni samræðunnar) og númeri sem kennari gefur upp hverju sinni. Öllum skráningum á að halda til haga í vinnuheftinu.
Aðra hvora viku þarf að skila heimavinnu. Framan af vetri verða nemendum settar fyrir skriflegar rökleikniæfingar en síðar taka við frjálsar pælingar þar sem nemendur eiga að velja sér viðfangsefni og skrifa um það á gagnrýninn hátt.
Heimspekivefur Garðaskóla