Gardaskoli Logo Heimspekivefur Garðaskóla


Hvernig á að hefja heimspekilega samræðu?

Þegar hópur krakka er kominn saman er oft ekkert erfitt að koma af stað heimspekilegri samræðu. Stundum er góð spurning eða athugasemd nóg. Stundum sprettur samræðan eins og af sjálfri sér þegar nemendur fá frið til að tala saman.

En fyrir kennara sem vill vinna skipulega í því að koma af stað samræðu í nemendahópum og þjálfa hana áfram er nauðsynlegt að hafa gott hráefni í höndunum. Neðar á þessari síðu má því finna ábendingar um ýmiss konar efni sem hentar í þessum tilgangi. Hér er bent á sögur og annað lesefni sem er ríkt af heimspekilegum hugmyndum og því líklegt til að koma hugsuninni af stað hjá nemendum. Hér er líka listi yfir námsefni sem hefur verið samið sérstaklega í þeim tilgangi að nota í heimspekikennslu. Slíkt námsefni inniheldur yfirleitt mjög gagnlegar kennsluleiðbeiningar fyrir kennara auk þess sem það leggur til grundvallar ákveðið námsefni fyrir nemendurna.

Sögur og aðrar kveikjur: Stökkpallur inn í samræðuna

Hreinn Pálsson (2002) hefur fjallað um hvernig sögur geta þjónað sem stökkpallur inn í heimspekilega samræðu. Hann leggur áherslu á að ýmiss konar textar geti opnað leið inn í samræðuna en að það sé skilyrði að í þeim séu ráðgátur í öndvegi, þ.e. að textinn bjóði lesendum að velta hlutum fyrir sér en séu ekki skrifaðar í þeim tilgangi einum að uppfræða nemendur. Hreinn segir síðan:

Ráðgátur má að sjálfsögðu kynna með öðrum miðlum, t.d. með brúðu-sýningum, myndböndum, myndspjöldum, myndabókum, listaverkum, fréttaúrklippum, dansi, söng og leiklist. Þótt þessir miðlar bjóði heim fjölbreytni þá er vinna við heimspekilegan texta einfaldari og markvissari í þjálfun heimspekilegs hugsunarháttar.

Ef unnið er út frá bókmenntum verður fyrst að setja niður fyrir sér hverjar þær heimspekilegu ráðgátur eru sem felast í textanum. Næst þarf að búa til verkefni og raðir samræðuspurninga kennaranum til stuðnings.

Í kennsluleiðbeiningum með ýmsu af því námsefni sem þýtt hefur verið á íslensku og talið eru upp hér að neðan má finna greiningu og leiðbeiningar eins og Hreinn lýsir hér að ofan, þannig að kennarar þurfa ekki að grunnvinna alla hluti.

Heimild:
Hreinn Pálsson. (2002). Valur, heimspekilegar smásögur, kennarakver. Reykjavík: Námsgagnastofnun.

Námsefni í heimspeki með börnum og unglingum

Lesefni - ríkt af heimspekilegum ráðgátum:

Erlent námsefni:

Um heimspeki með börnum og unglingum | Hafðu samband við okkur | ©2007 Brynhildur Sigurðardóttir