Gardaskoli Logo Heimspekivefur Garðaskóla


Námsmat

Í heimspeki, eins og öðrum námsgreinum, fer það eftir eðli viðfangsefnanna hverju sinni hvernig best er að haga námsmati. Það er samt gott fyrir kennara að hafa alltaf í huga að heimspekinám ætti að snúast að miklu leyti um að gera nemandann færan um sjálfstæð og gagnrýnin vinnubrögð og þess vegna ættu nemendur að fá tækifæri til sjálfsmats á ýmsum þáttum í heimspekivinnunni. Jafningjamat (þar sem nemendur meta hver aðra) er hjálplegt í þessu samhengi því það gefur nemendum tækifæri til að bera sig saman og læra hverjir af öðrum hvernig hægt sé að beita rökum til að meta sína eigin vinnu.

Í heimspekivali Garðaskóla er nemendum gefin einkunn í lok haustannar og í lok vorannar. Einkunnin byggir á þremur megin þáttum:

Dæmi um hvernig annareinkunn getur verið samsett má skoða hér.

Mat á þátttöku í samræðufélaginu

Mat á þátttöku nemenda í samræðufélaginu er liður í því að gera nemendur meðvitaða um hvaða hegðun sé viðeigandi og líkleg til að gera starfið sem allra best. Í upphafi heimspekinámsins er nauðsynlegt að kennarar setji nemendum ákveðnar grundvallarreglur til að fylgja í samræðum sínum og fyrsta námsmat er hægt að byggja á því að skoða hvort þessum reglum hefur verið fylgt eða ekki.

Smám saman ættu nemendur að taka meiri þátt í að móta rökin fyrir matinu á samræðunni og þeirra eigin þátttaköku í henni. Til dæmis ef reglan um að hlusta vel á aðra er orðin svo inngróin í samræðufélagið að það þarf aldrei að minnast sérstaklega á hana þá er hægt að beina sjónum að öðrum þáttum í samræðufélaginu eins og því að þeir sem tali mikið reyni að hjálpa hinum að komast að.

Mat á frammistöðu í samræðufélaginu verður að vera símat, þar sem nemandinn fær reglulega endurgjöf og tækifæri til að styrkja það sem vel er gert og leiðrétta hegðun sem var ábótavant. Eftirfarandi gátlistar gefa sýnishorn um hvernig orða megi reglur í samræðufélaginu og þá má nota við ýmis tækifæri í þróun samræðufélagsins, bæði af kennurum og nemendum:

Mat á árangri í verkefnavinnu

Í Garðaskóla vinna heimspekinemar ýmiss konar verkefni, bæði einstaklingslega og í hópum. Oft verða þessi verkefni til í samvinnu nemenda og kennara til að vinna úr spurningum sem upp koma í heimspekilegri samræðu hópanna. Því getur verið við hæfi að nemendur taki þátt í að ákveða hvaða viðmið nota skal við mat á verkefnunum. Sjálfsmat og jafningjamat á einnig vel við, sérstaklega í hópvinnu.

Hér að neðan má finna sýnishorn af verkefnum með matsblöðum fyrir kennara og/eða nemendur:

Mat á vinnubók

Í Garðaskóla er ekki notuð nein sérstök námsbók eða vinnubók í heimspekinni og sú krafa er gerð til nemenda að þeir haldi sjálfir utan um öll gögn sem unnið er með í vinnubók.

 

Um heimspeki með börnum og unglingum | Hafðu samband við okkur | ©2007 Brynhildur Sigurðardóttir