Gardaskoli Logo Heimspekivefur Garðaskóla


Ýmis verkefni í heimspekikennslu

Hvernig á að nota verkefnin hér að neðan?
Meginuppistaðan í heimspekikennslu eins og hún er stunduð í hefð barnaheimspekinnar er samræða nemenda undir stjórn kennara. En það er nauðsynlegt að brjóta upp samræðuna með annars konar og fjölbreyttari verkefnum. Þetta er nauðsynlegt til að koma tryggja að viðfangsefnin séu skoðuð frá sem flestum sjónarhornum og með fjölbreyttum aðferðum er komið til móts við ólíkar þarfir nemenda. Mörg af verkefnunum hér að neðan, sérstaklega rökleikniæfingarnar, eru líka hjálpleg til að kynna hugtök og verkfæri rökfræðinnar og gagnrýnu hugsunarinnar (rök, forsendur, mótsögn o.s.frv.)

Í allri kennslu er gott að hafa í huga orð Konfúsíusar (500 f.kr.) :
Í kennslu vitringsins leiðbeinir hann nemendum sínum en dregur þá ekki áfram; hann hvetur þá til að stefna fram á við en bælir þá ekki; hann opnar þeim leiðir en fer ekki með þá á leiðarenda; ef hann hvetur nemendur sína til að hugsa sjálfstætt þá getum við kallað þennan mann góðan kennara.

Hópefli: Gott að nota þegar nýir hópar byrja að starfa saman
Hópvinna :
  • Kapallinn og keðjan: Verkefni um ólíkar manngerðir. Nemendur verða fyrst að lesa bls. 96-98 í Lísu eftir Matthew Lipman því þar er líkingin um kapalinn og keðjuna kynnt og útskýrð. Þessa líkingu má vinna með á ýmsan hátt en í þessu verkefni er áherslan á að skoða hvernig má beita henni á frægar persónur - er Paris Hilton kapall eða keðja? Tvinnast hæfileikar hennar saman í góða og sterka heild eða á hún það á hættu að brotna saman þegar sterkur hlekkur brestur?
    Gott er að láta nemendur svara fyrst einstaklingslega, en bera síðan niðurstöðurnar saman í stærri hópum og umræðu.
  • Leikur: Spurningin svarar
    Nemendur æfa sig í að spyrja endalausra spurninga. Fyrirmyndin að leiknum er fengin úr kvikmyndinni Rosencrantz and Guildenstern are dead
  • Verkefni um staðalímyndir. Þetta má vinna einstaklingslega eða í litlum hópum. Gerð er krafa um skilgreiningu á hugtakinu staðalímynd og umfjöllun um það. Skil eru á því formi sem nemendur velja sér.
Einstaklingsverkefni :
  • Rökgátur 1
    Ýmsar gátur og hugarþrautir, sérstök áhersla á mótsagnir
  • Rökgátur 2
    Ýmsar gátur og hugarþrautir, sérstök áhersla á siðfræðilegar klípusögur
  • Hið góða líf
    Verkefnið felst í að lesa grein um "hið góða líf" á Vísindavefnum og svara spurningum um efni greinarinnar. Spurningarnar eru af ýmsu tagi, sumar krefjast bara stuttra staðreyndasvara en aðrar kalla á sjálfstæðar pælingar nemenda.
    Þetta verkefni er samið af nemendum í heimspekivali Garðaskóla veturinn 2007-2008. Nemendur læra að minnsta kosti jafn mikið af því að búa til svona verkefni og þeir gera með því að svara spurningunum.
Unnið á internetinu :
Leikir og þrautir :
  • Leikjavefurinn.is: ýmsir hópeflileikir og rökþrautirnar eiga sérlega vel við í heimspekinni
  • Leikur: Spurningin svarar
    Nemendur æfa sig í að spyrja endalausra spurninga. Fyrirmyndin að leiknum er fengin úr kvikmyndinni Rosencrantz and Guildenstern are dead
Glósur fyrir nemendur :
 

Unnið út frá kvikmyndum með heimspekilegt þema :
- góðar heimasíður eru Deus ex cinema og WIKI-síða um heimspeki í kvikmyndum

  • Little Miss Sunshine
  • Children of Men
  • Antz
  • South Park
  • Rosencrantz and Guildenstern are dead
  • The Wizard of Oz: spurningar um sjálfið og ólíkar manngerðir
  • The Hitchhikers guide to the galaxy
    • Fjallar um leitina að tilgangi lífsins. Skemmtileg pæling um hvernig best sé að svara spurningunni um tilgang lífsins, eða hver þessi spurning sé yfir höfuð!
    • Myndin byggir á samnefndum bókaflokki. Bækurnar (og myndin) eru stútfullar af skemmtilegum sjónarhornum á manninn og tilveru hans og geta eflaust orðið kveikja að samræðum um margvíslegustu spurningar.
    • Umfjöllun um bækurnar og aðra úrvinnslu á þeim má finna á WIKIPEDIU

 

Um heimspeki með börnum og unglingum | Hafðu samband við okkur | ©2007 Brynhildur Sigurðardóttir